Vor í lofti og Dainese lent í Púkanum
18.Mars 2010 | Íris Ösp

Dainese sendingin er komin í hús - Eigum við að ræða það eitthvað? GEGGJAÐUR fatnaður í hæsta gæðaflokki!

Sjón er sögu ríkari sagði gamall spekingur...

Vertu velkomin - Við tökum vel á móti þér!


Takk takk
18.Febrúar 2010 | Íris Ösp

Púkinn var á Vetrarsport 2010 sýningunni fyrir norðan á Akureyri um síðustu helgi og gekk frábærlega.  Okkur langar að þakka viðskiptavinum okkar fyrir frábærar móttökur og skemmtilegt andrúmsloft á sýningunni :)

Þangað til næst - sjáumst eða heyrumst hress !

Kv. Púkinn


Alpinestars Bionic Neck Support
19.Janúar 2010 | Íris Ösp

Höfum tekið í sölu gríðarvinsælu Alpinestars hálsspelkurnar.  Notað af professional ökumönnum eins og Ryan Villopoto, Chad Reed og Travis Pastarana.  Kraginn er hannaður þannig að hann dregur úr líkunum á alvarlegum háls meiðslum. 

Við hvetjum fólk til að kíkja í heimsókn og skoða þá.

Við erum á Grensásvegi 14.


Gleðilegt nýtt ár
29.Desember 2009 | Íris Ösp

Púkinn er opinn:

Mán 28.des frá 10:00-18:00

Þri 29.des frá 10:00-18:00

Mið 30.des frá 10:00-18:00

Púkinn er lokaður 31.des-3.janúar 2010.

Opnum aftur hress og kát mánudaginn 4.jan 2010 kl.10:00.

Hlökkum til að sjá ykkur og vonum að þið gangið gleðilega inn í nýtt ár.

Takk fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu :)

P.s. Minnum á skilafrestinn sem er út janúar 2010.


Skilavörur
29.Desember 2009 | Íris Ösp

Við viljum hvetja viðskiptavini okkar sem þurfa að skila eða skipta vörum að gera það fyrir janúarlok 2010.

 Eftir þann tíma verður farið í að taka upp nýjar vörur og verður því ekki hægt að skipta út eldri vöru :)

Kv. Púkinn


Gleðileg jól
24.Desember 2009 | Beggi

Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og þökkum ánæjuleg viðskipti á árinu.

Opnum aftur mánudaginn 28.desember klukkan 10:00


Undirflokkar: Fela / Sýna alla
Púkinn.com  >  Grensásvegi 14, 108 Reykjavík  >  Sími:566-6820  >  pukinn@pukinn.com
Oliver vefumsjón