Fyrstu 2011 hjólin frá Husqvarna komin í hús !
16.Ágúst 2010 | Beggi

Já við höfum fengið fyrstu 2011 árg af hjólum frá Husqvarna inn á gólf til okkar. Um er að ræða enduro bombuna -  Husqvarna WR 300 2-stroke. Þetta hjól vill sko láta taka á sér við Íslenskar aðstæður, enda sérhannað til þess. Léttleiki, mikill kraftur gerir þetta hjól eitt af betri enduro hjólum heims.

Stock kemur hjólið á 18" Excel afturgjörð og 21" Excel að framan ásamt því að koma á Michelin dekkjum. 260mm Wave bremsudisk að framan. 220mm Heill fljótandi að aftan ásamt Brembo höfuðdælum. 38mm Mikuni blöndung. 48mm KYB framdempurum og Shachs afturdempara. Hjólið tekur svo 9.5 litra af blönduðu bensíni og er götuskráð á hvítum númerum.

Eins og við segjum. Ef þú vilt Kraft, tork, léttleika og skemmtun í slóða aksturinn eða sem alhliða innanbæjar mótorhjól. Þá er Husqvarna WR 300 hjólið fyrir þig !

Verð aðeins 1.399.000.- kr

 

Husqvarna TE 125 Fjórgengis. Ef þú vilt frábært byrjenda hjól með flest allt sem "stóru" hjólin okkar hafa að bjóða. Þá er TE 125 hjólið fyrir þig. 6 Gíra kassi sem hentar vel í enduro-ið sem og innanbæjar umferðina. 930mm sætishæð. 18" afturgjörð, 21" framgjörð og þyngdin aðeins 117 kg. 

Svo er verðið frábært, aðeins 769.00.-kr. Geri aðrir betur !

Husqvarna CR 50. þetta er hjólið sem við höfum beðið lengi eftir að komi í framleiðslu aftur. Þarna erum við hreinlega að tala um snild !. Þess vegna ætlar Pukinn.com að bjóða ótrúlegan pakka með þessum hjólum sem endar með veglegri púka veislu sumarið 2011. Pukinn.com ætlar að niðurgreiða hjólin að hluta og bjóða galla og kennslu með hverju seldu hjóli, það má segja að við séum að fjárfesta í framtíðinni !

 

Gjörsamlega smækkuð útfærsla af TC250 X-Light hjólinu vinsæla. Vatnskældur 11hö 50cc 2-stroke mótor með miðflóttar afls kúplingu. Wave bremsudiskum með stoppa hjólið á stundinni. Pirelli dekkjum, stillanlegir demparar, 680 mm sætishæð, 12" framdekk, 10" afturdekk og vegur aðeins 43 kg !

Kynningar tilboð á 8 hjólum, fyrstur kemur fyrstu fær, aðeins 399.000.-kr

Kíktu til okkar niður á Grensásveg 14 og gerðu dúndur díl á 2011 árgerð af torfæruhjólum.


Draumurinn byrjar hér!
22.Júlí 2010 | Addi

Smellið hér til að sjá það nýjasta frá Husqvarna:  http://www.motocross.is/wp-content/uploads/2010/07/CR50_web_augl.pdf


Takk takk
18.Febrúar 2010 | Íris Ösp

Púkinn var á Vetrarsport 2010 sýningunni fyrir norðan á Akureyri um síðustu helgi og gekk frábærlega.  Okkur langar að þakka viðskiptavinum okkar fyrir frábærar móttökur og skemmtilegt andrúmsloft á sýningunni :)

Þangað til næst - sjáumst eða heyrumst hress !

Kv. Púkinn


Alpinestars Bionic Neck Support
19.Janúar 2010 | Íris Ösp

Höfum tekið í sölu gríðarvinsælu Alpinestars hálsspelkurnar.  Notað af professional ökumönnum eins og Ryan Villopoto, Chad Reed og Travis Pastarana.  Kraginn er hannaður þannig að hann dregur úr líkunum á alvarlegum háls meiðslum. 

Við hvetjum fólk til að kíkja í heimsókn og skoða þá.

Við erum á Grensásvegi 14.


Gleðilegt nýtt ár
29.Desember 2009 | Íris Ösp

Púkinn er opinn:

Mán 28.des frá 10:00-18:00

Þri 29.des frá 10:00-18:00

Mið 30.des frá 10:00-18:00

Púkinn er lokaður 31.des-3.janúar 2010.

Opnum aftur hress og kát mánudaginn 4.jan 2010 kl.10:00.

Hlökkum til að sjá ykkur og vonum að þið gangið gleðilega inn í nýtt ár.

Takk fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu :)

P.s. Minnum á skilafrestinn sem er út janúar 2010.


Skilavörur
29.Desember 2009 | Íris Ösp

Við viljum hvetja viðskiptavini okkar sem þurfa að skila eða skipta vörum að gera það fyrir janúarlok 2010.

 Eftir þann tíma verður farið í að taka upp nýjar vörur og verður því ekki hægt að skipta út eldri vöru :)

Kv. Púkinn


Undirflokkar: Fela / Sýna alla
Púkinn.com  >  Grensásvegi 14, 108 Reykjavík  >  Sími:566-6820  >  pukinn@pukinn.com
Oliver vefumsjón